Segðu mér satt....er táfýla af mér..?
19.11.2008 15:56:30 / bæjarinn

Drullið ykkur heim!

Mótmælendur íslands, haldiði nú einu sinni kjafti svo ráðamenn okkar hafi frið til þess að ráða fram úr efnahagsvanda íslands....er hægt að búast við ásættanlegum árangri vinnu sinnar ef hópur af heiladauðum abaköttum hoppa allt í kringum mann með vanhugsaðar kröfur, abakettir sem ekkert vita hvað þeir eru að tala um????? held nú ekki!

Þegar um hægst hefur um, þá er kanski tími til að hefja rannsókn mála, hver ber sökina, hvern skal hengja fyrir ill afdrif landsins, en þangað til þá væri hag okkar allra kanski best borgið með því að við almúginn héldum okkur saman og leifðum fólki að vinna sína vinnu, í friði og ró.  Ykkur kann að fynnast cjút að mynda heljarstórann hring utan um aþingishúsið en mér fynnst þetta einungis truflun og hreint úr sagt fáránlegur gjörningur í alla staði, í þeim erfiða tíma sem við stöndum frammi fyrir í dag.  Reynum að sína samstöðu á þessum síðustu og verstu tímum með einhverjum hagnítari hætti en þeim fjöldi íslendinga hefur tekið sér fyrir nú!

Ef ég færi á Austurvöll til að mótmla þá færi ég með stórt gjallarhorn, tæki mér stöðu fyrir framan mótmælendahópinn og gargaði svo af öllum lífs og sálarkröftum:

DRULLIÐ YKKUR HEIM!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 18:47:22 / bæjarinn

Einn reiður

Grænfriðungar....er ekki í lagi.... ,,hvalir eru ekkert að eiða fiskistofnum í kringum Ísland....skjótið ykkur!!!

Takk fyrir!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 11:44:00 / bæjarinn

Í nótt deymdi mig

Í nótt dreymdi mig að ég væri með mínum ættingjum og vinum í húsi Bærings afa míns í Stykkishólmi..þar vorum við að bíða eftir að ráðist yrði á okkur, því í húsinu á móti voru óvinirnir...þar var allt fólk sem ég þekki á einn eða annann hátt, suma bara séð.  En allavega, við vorum ekki með nein vopn, mun, mun fáliðari..var eiginlega tapaður bardægi og við vissum það vel...nema hvað að ég fór að gramsa í skúfum og tók fram gaffla og hnífa...og svo vasahnífa sem ég fann og byrjaði að útdeila þeim...síðan var bankað á hurðina og hurðin var opnuð og byssum miðað á fólkið....þau tóku nokkrar stelpur með sér í gislingu og við stóðum bara og gátum ekkert gert...þá ákvað ég að ráðast á einvhern sem hélt upp byssu og stakk hann með litlum skurðhníf í hálsinn og tók af honum byssuna, skaut úr henni á annan sem var með byssu, beint í hausinn og tók hans og henti henni til lárusar...síðan fórum við að drepa hvern manninn á færur öðrum...við urðum að flíja inn i hús og þá gekk Sigurjón skólastjóri inn, en hann var foringi hins liðsins, og skaut til mín tvem skotum sem ég sveigði mér undan áður en ég gaf honum kúlu á milli augnanna.  Síðan hljóp ég út aftur til að frelsa fangana...ég náði þeim og lét bera þá inn og spurði hvort einhverri stelpunni hefði verið nauðgað..stelpurnar sem höfðu verið í því að taka þær í burtu fyrir hitt liðið stuttu áður sögðu að Herdísi hafði verið nauðgað...ég missdi mig yfir þessum fréttum, varð ösku illur og skammaðist...lét bera Herdísi upp í rúmm..en hún var meðvitundarlaus...því næst gekk ég inn af pallinum, inn í sólhýsi og þaðan inn í stofu þar sem pabbi, afi, Lárus og Tryggvi voru fyrir...pabbi sagði: ,,þarna kemur hetjan sem leiddi okkur til sigurs".  Ég settisti í sófann hjá Tryggva en hann hafði verið í liði óvinanna...við töðuðumst einhvað á og síðan tók hann undan sófanum poka af hakki og kartöflum...undir sófanum voru margir slíkir pokar fullir af mat, en það átti að hafa einhvern hernaðarlegan tilgang, því Tryggvi hafði komið þeim þar fyrir áður...síðan fór Tryggvi út og ég vakna:)....jæja...þá er sagan búinn:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 14:01:50 / bæjarinn

Skeljabrekka!!!

Jæja...þá er komið að því...ég hef ákveðið að setja vísurnar sem ég hef verið að dunda mér við inná netið...þessar vísur þarf að syngja...eða kveða svo það þíðir ekki að fara með þær einsog ljóð.  Sumar eru réttar en aðrar eru alveg kolrángar, þ.e stuðlasteningin kolröng o.s.frv.  En ég vona að þið hafið gaman af...;)

 

 



 

 



Á skallanum til Skeljabrekku skulum halda.

Bjór og vín mun þambað þarna

þykir ey við hæfi barna.

(Þessi vísa var samin út frá því að Lárus og Atli áttu ekki að fá að fara með, þaðan kemur ,,þykir ey við hæfi BARNA”..:D)

 

 



Í ferðalagið hugaður sá hópur heldur.

Því hafsteinn mun við stírið vera

veltu fer, jú um að gera.

(þegar þessi vísa er samin er Hafsteinn nýbúin að velta jeppanum.  Það er varla til sá unglingur í svietinni sem ekki hefur verið bannað að fara í bíl með Hafsteini og þar að leiðandi hljótum við að vera mjöög hugrökk fyrir að þora þessu;)

 

 



Löng er ferðin, lítið þokast, Margrét keyrir.

Á leiðinni við munum drekka

Uns byrtist okkur skeljabrekka

(ljótt skot á Möggu því bíllinn hennar er 1400...)

 

 



Módel ætið skulu vera mikils metin.

Ölvaður mun Ölli vera

öllu víni mun hann stela.

(Eins og allir vita þá er Ölli frægur fyrir módelstörfin.....og í seinustu ferð stal ölli nokkru frá okkur, smá skot:) )

 

 



Ástarkonfekt ákafur hann í sig teigar.

Í heitum potti hvílist kauði

hiksti, rop og drykkjudauði.

(Ástarkonfekt er samfarakonfektið svo kallaða, hann Steinar var að drekka það einhvað óhóflega og dó því í heitapottinum)

 

 



Uppá fjallið göngugarpur glaður gengur.

Með kraftgalla og kassa landa

kalla frænda á milli handa.

(Hafsteinn er alltaf með gallann sinn, í síðustu ferð fór hann hálfa leið uppá fjallið fyrir ofan bústaðinn..sögur herma að hann ætli alla leið í ár;) )

 

 



Smokkur tínist, spoiler brotnar, áfengt þrítur.

Saklaus um sig teppið vefur

hjá gestgjafanum víst hún sefur.

(Seinna kvöldið í seinustu ferð drakk Berglind heldur mikið, smokki var stolið af ölla og hún braut spoilerinn á bílnum hans steinars...svo sefur hún víst hjá einhverjum Ásgeiri)

 

 



Ætíð er hún hljóðlát mjög og heldur feimin.

En ef í glasið grípur kona

galin verður rétt sí svona.

(Hún Magga mín þykir oft mjög feimin, en þegar hún fær sér í glas verður hún allt önnur manneskja:D..þá meina ég mun, mun,  opnari, einsog flestir reydnar:D)

 

 



Stöðugt ráp á strákum tvem er struk’að heiman.

Til Brautatungu bjuggust fara

byrtist þeim þar mærin Sara.

(Hafsteinn og Ölli voru duglegir við að ferðast á puttanum útum alllt í leit að skemmtun, komu svo (óvelkomnir) í bústað þar sem Ölli hitti Söru í fyrsta sinn...ooooo...sætt:D)

 

 



Samsekur í smokkaráni, þótti svalur.

Gestir við hjá honum erum

Skeljabrekku víst hann sér um.

(Einsog allir vita þá er þetta bústaður sem fjölskyldan hans Geira á, þar að leiðandi er hann gestgjafinn.  Einnig var kauði samsekur í smokkaráninu víðfrægaJ )

 

 



Þykir ætíð þrjóskur, þver og óstírlátur.

Og þegar ölið guttinn þyggur

útældur í gufu liggur.

(Þessi vísa er um Lárus einsig fólk sér, síðan er skotið inn í atviki frá partyinu hans Halla þegar Lárus dó í gufunni/sánunni, allur útældur og ógeðslegur, einsog sagan segirJ )

 

 



Atli eitt sinn áfeynkt fékk og sleikti útum.

En nú mun það víst orðinn siður

Alla jafn’er sleginn niður.

(Hér  er svo sagt frá því að atli var eitt sinn saklaus drengur, síðan byrja bræður hans að spilla honum:D...hella í hann áfengi og síðan er skotið inní því að þegar Atli hefur verið að drekka þá hefur hann oftar en ekki verið laminn niður...ég veit ekki hversu oft hann stundar þetta en það hefur komið fyrir oftar en einu sinniJ )

 

 



Alein uppí rúmmi Sóley lasin liggur.

Lágt er loft og hár er Svenni

ey er ljóst hvort þau nú nenni.

(Í síðustu ferð var Sóley lasin og misti meira og minna af öllu, Sveinbjörn er svona 2x hærri en hæðinn frá gólfi til lofts þannig að bakið hlaut að vera orðið frekar aumt...og svo þegar þessi vísa er samin er ekki alveg öruggt hvort þau ætli með:S)

 

 



Í potti svömlum, sötrum bjór og syngjum vísur.

Drukknar þar hinn ungi drengur

dýfu tekur einsog gengur.

(Hér er annað skot á Steinar því þegar hann dó í pottinum þá kom það fyrir að hann, á meðan kútur blundaði, datt ofan í pottinn og kom svo upp með miklum látum)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 14:13:14 / bæjarinn

Sveitin

Hvað kemur til..Bæring að blogga hér á þessari gömlu góðu...hvers vegna..jú það vill svo til að ég er óvenju glaður þessa stundina...hvernig stendur á því...jú, ég var úti að skokka...og uppgvötaði það hvað ég er griðarlega heppinn að búa í sveit.  Ég skokkaði hérna upp með áni, sast síðan niður, við hlið mér rann lítill lækur og í útsýni hafði ég árbæjarfoss...ég lagðist niður, alveg logn og þá rann það upp fyrir mér hvað ég væri heppinn..hversu margir fá að nóta þess sem ég get fengið á hverjum degi.  Aðrir kostir við sveitina...hér er mun minni mengun en í bæjum og borgum, einnig er ekki eins mikil læti (gott á morgnana þegar maður ætlar að sofa út, kanski páskafrí, og heirir ekki í neinum einasta bíl)  og þar sem við erum komin inná svefnin þá getur maður sofið á veturnar í niðamyrkri, eingin götuljós að trufla mann...bara stjörnubjart og fallegt..kannski norðurljós..ég meina hversu gott verður það...ég ætla mér alltaf að búa í sveit...eða í það minsta eiga hús út í sveit...það er loforð sem ég ætla að standa við..:D

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 22:04:43 / bæjarinn

Ástirnar í lífi mínu

Ég vildi bara deila með ykkur ástinni í lífi mínu....:D

Oki, hættið að slefa..en það er þó ekki alveg satt..þessi elska yrði að vera númer 2 því ein manneska toppar hann með þó nokkrum yfirburðum....:D

Talandi um sætustu stelpu í heimi:D...

Humm….ég stal svona, hef ekkert að gera svo ég fer út í þennann pakka, hjá Jakobi bróður J

 

(  ) reykt sígarettu 
(  ;) klesst bíl vinar/vinkonu
(X) stolið bíl (foreldranna) – Humm…var smá ruglaður…og í annarlegu ástandi…:D
(X) verið ástfangin/n – Oftar en einusinni og oftar en 2 :D
(X) verið sagt upp af kærasta/kærustu – Skondinn saga bak við það..var sagt upp af

                                                             vinkonu kærustu minnar sem ég síðan sienna

                                                             byrjaði með..:)
(  ) verið rekin/n

(  ) lent í slagsmálum
(  ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki – Því miður..:S
(  ) verið handtekin/n
(  ) farið á blint stefnumót
(X) logið að vini/vinkonu – Hvít lýgi bara..ekkert alvarlegt
J
(X) skrópað í skólanum – Hefur komið fyrir…:S..:D

(  ) horft á einhvern deyja
(  ) farið til Canada 

(X) hoppað í laufblaðahrúgu
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik -  Ólíkt Jakobi þá svindla ég ekki í leik, hvort sem það er með

                              bræðurum mínum eða einhverjum öðrum
(X) verið einmana
(  ) sofnað í vinnunni/skólanum

(  ) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta –
17. júní skjálftinn, var í sundi:D
(  ) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður – er samt ekki mjög auðvelt að kítla mig..:D
(  ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n – ójá..:(

(  ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(  ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
 
(  ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(X) lent í bílslysi – Keyrði á hest:/
(X) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(X) borðað líter af ís á einu kvöldi
(X) fengið deja vu
(X) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
(X) verið vitni að glæp
(  ) efast um að hjartað segði þér rétt til
(  ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
 
(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni 
(X) verið týnd/ur – Tíndist í verslunarkjarna einusinni..:(..var svaka hræddur..og svo í

                              bænum um daginn:D
(X) synt í sjónum

(  ) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn – ..:S..:)
(X) farið í löggu og bófa leik
(  ) litað nýlega með vaxlitum
(  ) sungið í karaókí

(X) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tkalla hérna)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki – Eignast kærustu;)
(X) hringt símahrekk
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins – Jájá..og teiknaði myndir líka

(  ) verið kysst/ur undir mistilteini 
(X) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(X) blásið sápukúlur -
(X) kveikt bál á ströndinni
(X) komið óboðin/n í partý
(  ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta
(X) hefur einhver óska þinna ræst
(  ) farið í fallhlífastökk
(  ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 19:33:43 / bæjarinn

Smá svona..:)

Berglind skoraði á mig í svona:D ég skorast nú ekki undan því þannig að hér kemur það….

 

4 störf sem ég hef unnið um ævina :

1.         Flokkstjóri í unglingavinnunni á Hellu

2.         Kassadama í 11-11 Hellu

3.         Tínslur í Reykjagarði

4.         Unglingavinna Hellu/Laugalandi

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

1.         The Boondock Saints..geeeðveik J

2.         Man On The Moon

3.         LOTR myndirnar..

4.         Allt sem inniheldur Jim Carry

4 staðir sem ég hef búið á:

1.         Áskin 4, Stykkishólmi

2.         Árbær, Holtum:D..

3.         ....

4.         ....

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

1.         Boston Legal

2.         Flestar gerðir heimildarþátta;)

3.         Lost

4.         Nip/Tuc

4 síður sem ég skða daglega fyrir utan blogg:

1.         Fer ekki svo oft í tölvuna:S

2.        

3.        

4.        

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

1.         Akureyri

2.         Arnarfell

3.         Búrfells-virkjun

4.         Og já…Danmörk:D

4 matarkyns sem ég held uppá:

1.         Pizzur

2.         Jólasteikin:P

3.         Lasagne

4.         Eiginlega flest matarkyns:P

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

1.         Skeljabrekku  

2.         Þorrablóti..ójá

3.         Nammilandinu í Hagkaup, Kringlunni

4.         Heitum potti, með einn kaldan í hönd og stara upp í stjörnurnar

 

 

….svona fór það nú…ég ætla að skora á 851 strákana að taka þetta..bara gaman að því..;)



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 23:36:42 / bæjarinn

Íslandsklukkan!!!

Erum að tala um að ég var í 6 tíma að klára þessa helvítis íslansklukku....frá því maður kom heim bara...ojæja..var svosem ágætis bók:)...hvers vegna er það að minn ágæti félagi, Haldór K. Laxness fær að skrifa svona reglulaust en enginn annar...af hverju er ég bara dregin niður í skóla fyrir að skrifa svona einsog mitt átrúnaðargoð og hetja, Laxness???....engan vegin sanngjarnt...ég legg til að við leggjum niður stafsetningu í eitt skiptið fyrir öll...eða í það minnst þetta anskotans y...á bara ekki að vera til...:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 17:52:29 / bæjarinn

Samkynhneigð og ættleiðingar

Ég fór að hugsa um tilfinnignuna að hata einhvað/einhvern...þetta er stór og mikil tilfinning..og ég er einn af þeim sem hefur fundið fyrir þessari stóru og miklu tilfinningu...ég hata fólk með fordóma!!!...fordómar koma útfrá vanþekkingu á viðfangsefninu og þröngsýni...að sjá það sem er öðrivísi en maður sjálfur sem einhvað öðruvísi og verra...og þar koma fordómar gagnkvart samkynhneigðum inn í, sem ég hata hvað mest, sem sagt fordómana.  Miklar breitingar hafa orðið á hugsunarhætti fólks gangkvart þessu fyrirbæri “samkynhneigð”...sem er auðvitað af hinu góða...en við erum langt frá því að vera búin því en eru fordómar, jafnvel hjá fólki sem telur sig ekki fordómafullt, um það að hommar og lesspíur megi ekki ættleiða börn!!!...Ein fáránlegasta rökfærsla sem ég hef heirt er þessi:  ,,ef ég ætti homma fyrir pabba þá myndi ég drepa mig, ég myndi skammast mín svo mikið”...ég meina er ekki í lagi...þú vex úr grasi og elskar foreldra þína, þó svo að þeir séu feitir, svartir eða samkynhneigðir....ekkert breytir þeirri ást..þú uppgvötar ekki allt í einu, bíddu...ég á 2 pabba...oje, ég hata þá, mér finst það ógeðslegt, ég ætla að drepa mig.  Hvurslags rökfærsla er það...ég byrti ekki nafn stráksins sem sagði þetta því ef þetta hefði verið ég sem sagði slíka ansk. vitleisu þá myndi ég eflaust skjóta mig...svona þröngsýni er bara ekki í lagi....þið fyrirgefið ef ég er of harður en þetta er mikið tilfinningamál fyrir mig....

Ég er gagnkynhneigður, og mér finnst það skrítið þegar 2 karlar eða konur eru að kyssast og þess háttar..einsog ákveðinn aðili sem kom með svona líka rosaleg rök sagði, að hann gæti ælt þegar hann sæi 2 stráka kyssast...en kemur þetta manni einhvað við...kemur það manni við hvað aðrir eru að gera..hvaða tilfinningar annað fólk hefur....nei, maður hefur eingan rétt á að segja að þetta sé einhvað ógeðslegra en annað...einhvað ómannlegra...

 

 



Einnig hef ég fengið þá útskýringu að ef samkynhneigðir myndi fá að ættleiða börn yrðu þau lögð í einelti restina af ævinni.... 

Ef samkynhneigðum yrði leift að ættleiða, sem þar af leiðandi yrði algengur hlutur, myndi það leiða af sér að það yrði ekki fordómar fyrir því lengur vegna þess hve almennt þetta yrði orðið...bara meikar sens....þetta yrði ekkert feimnismál og allir yrðu meðvitaðir um það...þýðir ekki að lifa í hræðslu við þetta og breita engu...hvernig væri ef blökkukonan hefði ekki neitað að standa upp fyrir hvíta manninum í bandaríkjunum þegar hvítimaðurinn vildi sætið hennar..þar sem blökkumenn áttu að standa upp fyrir hvítum og sitja aftast í vögnunum?  ...hefðu M.L. King og félagar hafið þessi kröftugu mótmæli sem urðu til þess að svartir fengu “sömu” réttindi og hvítir...?...hefði staða svartra ekki verið allt önnur í dag?  Maður veit aldrei..en hvernig viljum við hafa stöðuna í okkar samfélagi eftir 20 ár?  Sömu fáránlegu fordómarnir gagnkvart eins fjölmennum hóp og samkynhneigðum...viljum við enn banna þeim að njóta sömu réttinda og við útaf kynhneigð?   

Ekki ég, það er ljóst...hvað haldiði að það séu mörg börn í heiminum sem eru munaðarlaus....börn í afríku sem hafa misst báða foreldra og eru að deyja úr hungri..börn sem einga von eiga...og svo sækir samkynhneigt par um að ættleiða eitt slíkt barn..hvað er svarið,  Nei,  afhverju, jú, því þú ert ekki með “rétta” kynhneigð....flotter...eftir mánuð er barnið dáið úr hungri...fjúff...það var þó betra en að þurfa að lifa með samkynhneigðu pari sem hefði elskað það og séð um það.... það hefði fengið tækifæri til að gera einhvað með líf sitt...fengið tæki færi til að LIFA...en sem betur fer er búið að stoppa þessi ósköp...þar skall hurð nætti hælum!

Er öllum kanski sama...?...ég veit ekki hvernig hjarta býr í ykkur en ég myndi vilja bjarga þessum börnum...ég myndi vilja gefa þeim tækifæri til að byrja upp á nýtt...til að LIFA...

 

 



Ein besta ástæðan fyrir því að samkynhneigðir ættu ekki að fá að ættleiða er sú sem Sóley vinkona mín kom með...Barnið missir af því að eiga bæði mömmu og pabba...Karlar skilja ekki og kunna ekki á þarfir stelpna td.  Jú, auðvitað skiptir þetta máli..en hversu miklu...vitum við það fyrir víst...held ekki...en hvernig er að alast upp með 2 körlum eða konum....auðvitað hefur það áhrif...en að það ætti að stjórna því að samkynhneigðir ættu ekki að nóta þessara réttinda er af og frá....Karlar eru kanski ekki meðvitaðir um allar þarfir stúlkna en þú lærir á barnið þitt...getur lesið þig til um hlutina og upplifar þá...

Þetta sjónarmið er því að mínu mati ekki gilt heldur...auðvitað er fjölskildan einn mikilvægasti félagsmótunaraðilinn en það er svo markt annað sem er þar líka..félagar, skólinn og þess háttar þannig að þó að maður alist upp hjá tvem konum þarf það ekki að þíða að maður verði einhvað extra kvennlegur fyrir vikið...

 

 



Rétt í endan langar mig að segja hvað mér finst fáránlegt þegar fólk segir:  djöfulsans hommi ertu maður...lessan þín...og þess háttar...hvernig væri ef við segðum:  djöfull ertu gagnkynhneigður maður....eða einhvað á þessa leið...það að segja að einhver sé hommalegur er fyrir mér eingin svakaleg móðgun en það að fólk skuli segja þetta er vanhugsað og kjánalegt...þroskumst nú og hættum þessu!!!

Komum fram við fólk af virðingu sama hvort það sé hvítt, svart, samkynhneigt, gagnkynhneigt, fatlað eða á einhvern hátt öðruvísi en maður sjálfur..öll erum við manneskjur...öll höfum við sama tilverurétt og eingin getur dæmt annað....


» 14 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 17:15:59 / bæjarinn

Svefn....

Jæja krakkar mínir, hvað segiði þá:D...ég er búinn að vera helvíti latur undanfarið...er virkilega að spá í að taka bara pásu á þessa síður allar...leggjast bara uppí rúmm og leggjast í dvala.....ZZZZzzzzZZZzzzzzZZZZ......


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 22:23:08 / bæjarinn

Svefnleysi

Skólinn byrjaður og bæjarinn, sem er alkunnugur fyrir sína dönskusnilli, er að deyja úr þreitu.....svona lít ég út í tímum..held augunum glentum og reini eftir fremsta megni að sjá útum þau..

Svona lít ég út í tímum..held augunum glenntum og reyni eftir fremsta megni að sjá útum þau..

gengur illa..er því ekki að ná eins miklu efni og æskilegt væri:S...

Hér er smá spurning...er hrynjandi í karlkyni eða kvenkyni ..eða jafnvel hvorukyni....???...þessari spurningu er sérstaklega beint til allra þeirra sem hafa verið iðnir við að benda á allar stafsentingavillurnar á þessari síðu...sjáum kvort restin í íslenskunni sé í lagi;)...


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 19:05:03 / bæjarinn

Bíll!!!

Góða kvöldið góðir hálsar...ég var á bílasölu í dag..jú, hann Bæring var að skoða bíla..já þið heyrðuð rétt...er nefnilega að fara að versla mér bíl..var bara svona að skoða þetta....er samt búinn að vera að skoða á netinu líklegar kerrur..er eiginlega búinn að velja...getið skoðað hann á

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=34&BILAR_ID=993429&FRAMLEIDANDI=NISSAN&GERD=ALMERA%20H/B%20LUXURY&ARGERD_FRA=2002&ARGERD_TIL=2004&VERD_FRA=950&VERD_TIL=1550&EXCLUDE_BILAR_ID=993429

hann mun vera í bænum og tek rúntinn á morgun eftir skóla og skoða þetta nánar..en segið mér hvað ykkur fynnst...fæ hann á 1.090.000 og fæ með vetrardekk og hann er með cd.spilara...var nú ekki sáttastur með litinn en gæti svosem verið verra;)...

en mikið djöfull er ég feginn að hafa Jakob bróðir til að hjálpa mér með þetta...hann er búinn að hringja í hinar og þessar bílasölur fyrir mig og vesenast mikið þannig að ég þakka þér æðislega fyrir Jakob..;)..


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 23:30:56 / bæjarinn

Trúarbrögð!!!

Jæja...ég var að tjatta við mömmu í dag meðan við brutum saman sokka...og samræðurnar bárust í trúna...Á jólum á nú að vera halda uppá ,,fæðingu frelsarans"...sem fæddist í raun í júlí..hvað er það...hér á árum áður var einhver veisluhöld hjá íslendingum sem einkendust af drikkju, góðum mat og söngi, vinir komu saman og haldin var hátið...þetta var þegar goðatrú ríkti á landinu...veisluhöldin voru haldin 24 desember..jú, á aðfangadag...annarstaðar í heiminum voru svipaðar veislur tileinkaðar allt öðru og var hún 25 des...og hvað gera menn..jú, skella bara fæðingu frelsaran 25 des..íslendinar og nokkrar aðrar nágranaþjóðir einsog noregur og dannmörk halda jól 24 des til að drepa hina hefðina og festa kristnina inní landann..

Skil ekki hvernig hægt er að trúa á bók sem var skrifuð langt á eftir sinni samtíð og er svo rosalega ýkt á köflum að það hálfa væri nóg...eva og adam...ég meina, það er fólk sem trúir þessu...ég er kannski bara svona raunsæismaður en það eru takmörk sko...ég er farinn að halda að gamla góða goðafræðinn meiki meira sens...er ekki sagt að nýja testamentið sé í raun saga 3 manna....en í bókinni er þetta ein maður..sjálfur Jésú Kristur, frelsarinn sem var einsog fjöldi annara manna (var svona tískubilgja á þessum tíma) með fjölda allan af lærisveinum og fólki sem hlíddi á hann predika um hitt og þetta...löbbuðu um landið í hvítum kuflum og böðuðu sig í frægð of víni...

og svo er annað...jesú fæddist ekkert í jötu í fjárúsi með súpersise stjörnu fyrri ofan hlöðuna....nei..þetta er allt plat...og meira til...Islamstrú og Kristintrú og hvað þetta nú allt heitir trúir á einn og sama guðinn en samt er alltaf þessi ágreiningur...hvað er málið...en það bregst ekki að alltaf þykist kristið fólk vera með flottari og betri trú..svona einsog eldri bróðir að horfa niður á yngri bróður..: ,, nei kjáninn þinn..þú ert að gera þetta vitlaust"...og alltaf þurfum við að reina að siða þessa villimenn til því auðvitað erum við með ,,rétta" trú...

Svo er t.d. Biblían mun ofbeldistfyllri en t.d. Kóraninn...samt blótum við þesssum villimönnum...rétt einsog í öllum trúarbrögðum eru til öfgakendir hópar sem nota t.d. hriðjuverk til þess að koma sínu fram...ég segi ekki að það sé gott...en ég held að kristið fólk sé í raun með sínum hugsunarhætti um að við séum betri og allt það gefa þessum öfgahópum ástæðu til að stunda slíkt...og það verður að viðurkennast að þessi aðferð vekur gríðarlega athyggli....

Sumir vilja meina að með mátti bænarinnar er hægt að finna huggun...jú..það er rétt...en það er líka þannig með öll trúarbrögð...ef þú trúir á eitthvað þá getur það alltaf hjálpað þér..þetta er allt í hausnum á þér..ef þú trúir á bláa vettlinga þá geturu fengið sömu huggun við að hugsa um þá, ruglað dæmi en þetta er satt... rétt einsog þegar maður var lítill og fékk t.d. sár á hnéð..hvað gerði maður..jú fór til mömmu og lét hana kyssa á bágtið..og viti menn sársaukinn hvarf...ef maður trúir einhverju nógu mikið þá virkar það svona...

en það er mun meira sem ég ættlaði að fara inná en ég man bara ekki hvað...en hvað finnst ykkur?


» 16 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 18:40:44 / bæjarinn

Vikunnar..!!!

Bara að minna á að loksins er kominn ný vikunnar:D...svolítið síðan það var endurnýjað, en allavega komið núna:)...



Ég virðist ætla að fá þá nokkra:D...


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 19:41:11 / bæjarinn

Prófin

"Verkefni nákvæmlega eins og ég vil sjá þau, fullt af sköpunarkrafti og áhuga, nota tækifærið til að gera eitthvað skemmtilegt"...umsögnin við myndina okkar Fjólu og Ragga...erum bara að tala um snild..karlinn sagði að hann vildi eiga hana til að hrella þá krakka aðeins sem kæmu næstu önn...:D...nokkuð gott:D

En einkunnir fóru svo:

Enska 6

Félagsfræði 9

Íslenska 8

Íþróttafræði 8

Blak 8

Íþróttir 9

Saga 9

Sálfræði 8

Skólasókn 10

Held að skólasókn sé mín sterkasta grein..held mig við hana bara og sleppi Enskunni;)

En hvernig komu ykkar út???


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7